Ytra mat – matsskýrsla

admin

Nú er komin út matsskýrsla um ytra matið sem fram fór í Auðarskóla í mars.  Það eru matsaðilar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Mennta- og menningarráðuneytinu sem framkvæmdu matið og tóku saman skýrsluna.  Ytra mat er lögbundið og skulu öll sveitarfélög sjá til þess að það sé framkvæmt í skólum þeirra. Skýrslan er hin fróðlegasta aflestrar  og ljóst að staðan …

Niðurstöður frá Skólaþingi Auðarskóla

admin

Bryndís Böðvarsdóttir lauk á dögunum við skýrslu frá skólaþingi Auðarskóla, sem haldið var 24.mars síðastliðinn.   Á skólaþingið mætti 30 manns sem ræddi líflega saman um grunnskólann.   Alls er að finna 330 atriði í skýrslunni, sem fjalla um styrkleika í skólastarfinu  og það sem betur má gera.   Hér er því á ferðinni mikið efni fyrir  skóla og sveitarstjórn …

Grunnskólamót í glímu

admin

Grunnskólamótið í glímu fór fram á Ísafirði helgina 14. og 15. april.  Glímufélag Dalamanna fór með keppendur á grunnskólaaldri á mótið. Árangur nemenda úr Auðarskóla var góður og  m.a. komið heim með einn meistaratitil en Matthías Karl Karlsson vann  í sínum aldursflokki og er því grunnskólameistari stráka í 7. bekk.  Árangur Auðarskóla var eftirfarandi: 7. bekkur, strákar: 1. sæti: Matthías …

Forvarnafundir

admin

Forvarnarfundur með foreldrum Á morgun miðvikudaginn 18. april mun Ásgrímur Jörundsson frá Staðarfelli funda með foreldrum nemenda. Hann mun segja frá starfsemi SÁÁ, og hvernig foreldrar geta áttað sig á breyttri hegðunn barna vegna neyslu. Annars hefur hann opið um hvað verður talað. Fundurinn, sem er opinn öllum foreldrum, verður kl. 20.00 í skólanum. Foreldrafélag Auðarskóla Þennan sama dag mum …

Unglingadansleikur í Dalabúð

admin

Hinn árlegi unglingadansleikur samstarfsskólanna á Vesturlandi verður haldinn þann 17. april í Dalabúð.   Dansleikurinn byrjar kl. 07.30 og stendur til 10.30.  Hljómsveitin Dísel heldur uppi fjörinu.   Aðgangseyrir er kr. 1500.  Sjoppa á staðnum. Nemendur í Auðarskóla þurfa að koma með aðgangseyri í skólann um morguninn og greiða umsjónarmanni félagslífs (Aldísi).

Páskabingó Auðarskóla

admin

Hið árlega páskabingó Auðarskóla verður haldið  í Tjarnarlundi laugardaginn 7. apríl kl. 20.00 (húsið opnar 19:30). Spjaldið kostar aðeins  500 kr. Posi á staðnum. Góðir vinningar eins og vanalega. Allir velkomnir ! Nemendafélag Auðarskóla.

Frá árshátíð

admin

Árshátíð Auðarskóla fór fram í gær.  Foreldrar og vandamenn fylltu Dalabúð.  Nemendur stóðu sig með stakri prýði á sviði sem og við aðstoð í sal.  Foreldrar sáu um glæsilegar veitingar.  Flest starfsfólk grunnskóladeildar var við störf og stýrði athöfninni eins og best gerist.  Hér er öllum aðilum Auðarskóla þakkað fyrir góða árshátíð. Myndir frá því í gær komnar í myndasafn …

Páskaegg í leikskólanum

admin

Christine á Skörðum er með landnámshænur.  Hún var svo væn að koma með útungunarvél og egg í leikskólann. Núna bíða börn og starfsfólk spennt eftir ungum. Í gær voru eggin gegnumlýst og gátu börnin þá séð æðar og fleira inn í egginu. Það reyndist mjög spennandi að fylgjast með þessu. Það tekur 21 dag fyrir egg að ungast út svo …

Annað sætið hreppti Guðmundur K. Þorgrímsson

admin

Í gær for fram lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar á vegum samstarfsskólanna.  Keppnin var haldinn í sameinuðum grunn- og leikskóla í Hvalfjarðarsveit.   Alls voru það 12 keppendur í sjöunda bekk, frá fimm skólum, sem reyndu með sér. Fyrir hönd Auðarskóla kepptu þeir Guðmundur Kári  þorgrímsson og Tómas Andri Jörgenson.   Báðir stóðu þeir sig með stakri prýði í keppninni. Í heild …

Árshátíð Auðarskóla

admin

Ágætu foreldrar Þann 29. mars næstkomandi verður haldin árshátíð nemenda Auðarskóla í Búðardal. Árshátíðin verður í Dalabúð og hefst kl. 18.00. Áætlað er að dagskrá og kaffiveitingar taki um tvær og hálfa klukkustund. Diskótek verður svo til kl. 23.00 fyrir þá sem vilja. Þennan sama dag verður heimakstri nemenda flýtt um klukkustund og fara skólabílar frá Búðardal kl. 14.00. Yngri …