Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla á Vesturlandi og Vestfjörðum var haldinn í Stykkishólmi nú síðastliðinn laugardag. Átta tónlistarskólar tóku þátt að þessu sinni og þar á meðal var Auðarskóli með tvö atriði. Söngsveit Auðarskóla söng tvö lög og Steinþór Logi Arnarsson lék frumsamið lag á harmoniku. Þrátt fyrir nokkur forföll í söngsveitinni gengu atriði skólans vel. Í lokaathöfn hátíðarinnar var …