Árshátíð Auðarskóla frestað
Eins flestum er kunnugt um er skæður vírus að ganga yfir landið okkar og þurfum við að taka tillit til hans og afleiðinga sem honum geta fylgt. Eftir nokkra yfirlegu þá hef ég tekið þá ákvörðun að fresta árshátíð Auðarskóla um óákveðinn tíma. Þetta er gert eftir samtal við yfirmenn mína og sóttvarnarlækni Vesturlands. Ég vona að þið sýnið þessu …
Skólabílar og leikskóli
Allur skólaakstur Auðarskóla fellur niður á morgun, þriðjudaginn 14. janúar 2020 vegna veðurs. Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun hér á svæðinu í nótt og í fyrramálið og því höfum við ákveðið að skólabílar aki ekki á morgun, eins geta foreldrar barna í Búðardal ákveðið að hafa börn sín heima ef veður er slæmt og færð eftir því. Það …
Stjórnendaskipti í Auðarskóla
Þann 31. október sl. lét Hlöðver Ingi Gunnarsson af störfum eftir fjögurra ára starf sem skólastjóri Auðarskóla. Hann afhenti Haraldi Haraldssyni, nýjum skólastjóra, lyklavöldin að skólanum við stjórnendaskiptin. Við óskum Hlöðver og fjölskyldu hans velfarnaðar í leik og starfi í framtíðinni og þökkum honum kærlega fyrir samstarfið og samfylgdina undanfarin ár. Haraldur Haraldsson tók til starfa 1. nóvember. Haraldur hefur 30 ára …
Skipulagsdagur 4. nóvember
Skóli fellur niður miðvikudaginn 4. nóvember næstkomandi bæði í grunnskóla- og tónlistarskóladeild vegna skipulags á skólahaldi samkvæmt reglugerð sem gefin var út af ráðherra. Stjórnendur
Hundraðdagahátíð!
Skrifaðar voru tölurnar frá 1 – 100 og hundrað algengustu orðin í íslensku. Að vinnu lokinni var haldin hátíð þar sem boðið var upp á pizzu og djús. Deginum lauk svo með frjálsum leik. Umsjónarkennarar á yngsta stigi. Föstudaginn 31. janúarhélt yngsta stigið hundraðdagahátíð.
Vetrarfrí í Auðarskóla
Auðarskóli, grunnskóla- og tónlistardeild verður í vetrarfíi frá og með föstudeginum 30. október til og með þriðjudeginum 3. nóvember. Lengd viðvera fellur líka niður þessa daga og engir skólabílar verði í akstri. Skólastarf hefst svo miðvikudaginn 3. nóvember samkvæmt stundatöflu. Þorkell Cýrusson aðstoðarskólastjóri




