Þann 15. maí síðastliðinn fór hópur af nemendum úr Auðarskóla á Reyðarfjörð til að keppa í glímu. Þau tóku flugvél frá Reykjavík til Egilsstaða þar sem þau voru sótt þar og farið með þau á Reyðarfjörð. Í hópnum voru þau Mikael, Benóní, Telma, Jóhanna Vigdís, Birna og Dagný Sara. Öllum gekk þeim mjög vel, Mikael hafnaði í 3. sæti í flokki 6. bekkjar strákar stærri. Benóní hafnaði í 3. sæti hjá 7. bekkja strákum. Telma hafnaði í 4. sæti hjá 5. bekkjar stúlkum. Birna hafnaði í …
Skólahald í grunn- og leikskóladeild í samkomubanni
Skólahald í grunnskóladeild Auðarskóla í samkomubanni Til að byrja með verður 8. – 10. bekkur í fjarnámi og munu umsjónarkennarar vera í samskiptum við foreldra og forráðamenn um fyrirkomulagið á því. 1. bekkur, 2. bekkur 3.-4. bekkur, 5. bekkur, 6. bekkur og 7. bekkur verða sérhópar. Við munum hafa öll samskipti milli hópa í lágmarki, bæði milli nemenda og milli starfsfólks. …
Núvitund fyrir pabba, mömmur, afa og ömmur
Foreldrafélag Auðarskóla býður upp á erindi um núvitund í uppeldi barna, fimmtudaginn 7. febrúarkl: 20:00, í sal efri byggingu grunnskólans. Námskeiðið heitir „Núvitund fyrir pabba, mömmur, afa og ömmur og aðra sem koma að uppeldi barna„. Í þessu fræðsluerindi kynnir Bryndís Jóna frá Núvitundarsetrinu hvað felst í núvitund og gildi núvitundar fyrir alla þá sem koma að uppeldi barna. Við prófum …
Varðandi skólahald í Auðarskóla
Kæru foreldrar/forráðamenn Eins og öllum ætti að vera kunnugt erum við að takast á við aðstæður sem ekki eru fordæmi fyrir. Við höfum unnið hörðum höndum að því síðustu daga að skipuleggja starfið í Auðarskóla þannig að við getum haldið úti sem mestri starfsemi. Við erum öll að gera okkar besta til þess að ná utan um breyttar aðstæður og mikilvægt …
Stóra upplestrarkeppnin
Upplestrarkeppni 7. bekkjar fór fram miðvikudaginn 20. mars. Óhætt er að segja að nemendur hafi staðið sig með stakri prýði. Tekið góðum framförum og bætt sig hvert í sínum þáttum. Fulltrúar Auðarskóla í Vesturlandsupplestrinum sem verður í Dalabúð fimmtudaginn 28. mars verða þau Jóhanna Vigdís og Alexander Örn. Til vara er Katrín.
Samvinna 1. bekkjar og elsta árgangs leikskólans
Í samvinnu 1. bekkjar og skólahóps var umhverfið og plastnotkun til umræðu. Til að minnka plastpokanotkun saumuðu og klipptu nemendur boli og bjuggu til fjölnotapoka sem hægt er að grípa í ef fötin hjá yngsta stigi verða blaut. Nemendurnir bjuggu til 30 boli sem notaðir verða í staðinn fyrir plastpoka. Mikilvægt er að foreldrar sendi pokana aftur í skólann svo …
Nýárskveðjur 2021
Börn, nemendur og starfsfólk Auðarskóla óskar öllum foreldrum/forráðamönnum og velunnurum nær og fjær gleðilegs nýs árs 2021. Með þökk fyrir samfylgd og samvinnu á liðnu ári óskum við að nýtt ár færi okkur öllum farsæld og gleði. Nýárskveðjur frá Auðarskóla.




