16. mars fór fram, í Auðarskóla, undankeppni fyrir Stóru Upplestrarkeppnina. Keppnin er ætluð nemendum 7. bekkjar og er undirbúningur nokkur fyrir keppni sem þessa og allir eru hvattir til að taka þátt í verkefninu á einhvern hátt. Æfingatímabilið er nokkrar vikur og æfingum fjölgar eftir því sem líður á. Við lok þessa tímabils er ánægjulegt að sjá þær framfarir sem …
Skólahreysti
Á þriðjudaginn 14. mars 2017 tók Auðarskóli þátt í Skólahreysti. Í liðinu okkar voru þau Hilmar Jón og Lilian sem kepptu í hraðabrautinni, Jóna Margrét sem keppti í armbeygjum, Sigurdís Katla í hreystirgreip og Finnur sem keppti í dýfum og upphífingum. Varamenn voru þau Sigurdís Katla og Árni Þór. Þau stóðu sig ákaflega vel og fóru nemendur af mið- og …
Vísindasmiðja á leikskóla
Krakkarnir á Tröllakletti hafa verið í vísindasmiðjum í þessari viku. Þau hafa verið að leika með ljós og liti. Einnig hafa þau verið að gera mjólkurlistaverk og lært þá um eiginleika efna. Svo bjuggu þau til lava lampa, Þá lærðu þau að sum efni eru þyngri en önnur og svo er bara svo gaman að sjá þegar að freyðitaflan fer …
Breytingar á starfsemi leikskólans
Framundan eru allnokkrar breytingar í leikskólanum. Frá og með 1. október eykst þjónusta skólans þegar hann tekur inn börn frá 12 mánaða aldri. Þetta er viðamikil breyting sem kostar talsverðan undirbúning. Ljóst er að breytingin mun hafa áhrif á allt innra starf leikskólans. Ítarlegri upplýsingar er að finna í hjálögðu foreldrabréfi. Slóð hér. Skólastjóri
Útivistardagur
Í dag var útivistardagur í grunnskóladeildinni. Þá færist kennslan meira út. Hér á myndinni má sjá tíma úr heimilisfræði.
Leikskólakennara vantar við Auðarskóla
Leikskólakennara og deildarstjóra vantar við leikskóladeild Auðarskóla. Auðarskóli, sem er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli, er staðsettur í Búðardal. Einkunnarorð skólans eru: Ábyrgð –Ánægja- Árangur. Leikskólinn er tveggja deilda og að jafnaði dvelja þar 35 – 40 börn frá 12 mánaða aldri. Húsnæði leikskólans er nýlegt og aðstaða og aðbúnaður góður. Sjá meiri upplýsingar á www.audarskoli.isVið leitum að einstaklingi sem …
Reykir
Við í sjöunda bekk erum „nýkomin“ heim frá Reykjum. Á námskeiðunum var gaman og flestir voru að kynnast fleiri krökkum. Okkur fannst flestum skemmtilegast í náttúrufræði og sögu og þá sérstaklega þegar sagan af Gretti var sögð. Byggðasafnið kom líka sterkt inn og hákarlasögurnar fræðandi. Frítíminn var skemmtilegur. Stefán og Daníel voru snyrtipinnar ferðarinnar og fóru í sturtu á hverjum …
Hvar er Stekkjarstaur?
Á mánudaginn 30. nóvember stendur foreldrafélag Auðarskóla fyrir jólaleiksýningu fyrir yngsta stig grunnskólans og leikskólabörnin. Leiksýningin „Hvar er Stekkjarstaur ?“ verður sýnd í Dalabúð klukkan 14:00. Foreldrar eru velkomnir að koma og horfa með börnunum. „Það er kominn 12. desember, en jólasveinninn Stekkjarstaur kemur ekki til byggða. Þegar Halla fer að athuga hvernig á því standi kemst hún að því …
Tónfundir í tónlistarskólanum
Tónfundir á haustmisseri verða haldnir miðvikudaginn 28. kl 14.30 (5-10 bekkur) og fimmtudaginn 29. kl 14.30 (1-4 bekkur).Þar munu nemendur tónlistarskólans koma fram og spila og syngja fyrir foreldra og gesti. Fundurinn verður haldinn í sal tónlistarskólans og allir eru velkomnir. Kær kveðja Óli og Jan



