Smiðjuhelgi framundan hjá unglingastigi

Auðarskóli Fréttir

Fyrri smiðjuhelgin fer fram núna næstkomandi föstudag og stendur til laugardags. Br0ttför kl 13 frá Auðarskóla. Fjölbreyttar smiðjur í boði, nemendur velja sig í smiðju í dag og fá niðurstöðu um hvaða smiðju þau fá seinna í vikunni. Hér má sjá lista yfir smiðjur í boði að þessu sinni Dans smiðja Í danssmiðjunni verður unnið með líkamann sem verkfæri og …

Skipulagsdagar í næstu viku

Auðarskóli Fréttir

Skipulagsdagur í grunnskólanum næstkomandi mánudag 2. október skólabílar ganga ekki þann dag. Leikskólinn verður opinn.   3. október Foreldraviðtalsdagur Auðarskóla í leik- og grunnskóladeild. Foreldrar fá fundarboð með tímasetningu á sínu viðtali í tölvupósti á næstu dögum. Ákveðið var að halda áfram að þróa nemendastýrð viðtöl í grunnskólanum líkt og síðasta skólaár. Nemendur mæta í viðtalið með sínum forráðamönnum.

Vel heppaður viðburður hjá Foreldrafélaginu

Auðarskóli Fréttir

Foreldrafélagið stóð fyrir haustfagnaði leikskólabarna Auðarskóla í Dalabúð þann  21. september síðastliðinn. Viðburðurinn var vel sóttur af börnum og foreldrum. Blaðrarinn kíkti í heimsókn og bjó til blöðrudýr fyrir alla sem vilu, hoppukastali settur upp inn í sal, léttar veitingar frammi og listastöð sem hægt var að lita myndir. Frábært framtak hjá Foreldrafélaginu.

Haustfagnaður leikskólabarna í Auðarskóla

Auðarskóli Fréttir

Fimmtudaginn 21. september kl 16:00 verður smá haustfagnaður í Dalabúð fyrir leikskólabörnin og foreldra þeirra. Eldri systkini mega að sjálfsögðu fylgja með. Við ætlum að skemmta okkur saman stutta stund, foreldrar og börn. Við hlökkum til að sjá sem flesta. Einnig væri gott ef  foreldrar sjái sér fært að aðstoða við frágang eftir að fagnaðinum er lokið. Margar hendur vinna …

Frábær dagur á Miðstigsleikum

Auðarskóli Fréttir

Miðstigsleikar fóru fram á Skallagrímsvelli í Borgarnesi þann 13. september síðastliðinn í blíðskaparveðri. Leikarnir eru samstarfsverkefni nágrannaskólanna Auðarskóla, Grunnskóla Borgarfjarðar, Grunnskólans í Borgarnesi, Heiðarskóla og Reykhólaskóla. Þar koma nemendur saman úr 5., 6., og 7. bekk og gera sér glaðan dag og keppa í hinum ýmsu greinum. Keppt var í fótbolta stúlkna og drengja, kúluvarpi, 60 metra hlaupi, langstökki og 600 …

Símafrí í Auðarskóla

Auðarskóli Fréttir

Símafrí í Auðarskóla heldur áfram eins og undanfarin ár. Nú hafa verið sett upp um skólann skýr plaköt til útlistingar á fríinu, hvar eiga nemendur að geyma símann á skólatíma og einnig verklag um viðurlög gleymi nemendur sér. Það er okkar trú sem og foreldrasamfélagsins að símafrí geri börnum gott, hjálpumst að við halda Auðskóla símafríum á skólatíma.   Hér …

Gulur september

Auðarskóli Fréttir

Nemendur unglingastigs fengu í dag fræðslu um geðheilbrigði og tóku umræður um það mikilvæga efni með kennara. Markmiðið með gulum september er að vekja athygli á geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum en í ár er sérstök áhersla lögð á geðrækt á vinnustöðum, með slagorðinu „Er allt í GULU á þínum vinnustað?“ Þann 7. september er GULI dagurinn og eru öll hvött til …

Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla 23. ágúst

Auðarskóli Fréttir

Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn næstkomandi miðvikudag, 23.ágúst, klukkan 20:00 í efra rými grunnskólans. Við hvetjum alla foreldra til að mæta og hjálpa okkur að efla samstarf skóla og heimilis. Dagskrá 1. Ritari fundar og fundarstjóri kosin 2. Varastjórnarmeðlimir kosnir 3. Kosinn fulltrúi í fræðslunefnd 4. Kosnir fulltrúar í skólaráð 5. Kosnir tveir skoðunarmenn ársreikninga 6. Skýrsla stjórnar lögð fram …

Skólasetning Auðarskóla 23. ágúst

Auðarskóli Fréttir

Ágætu foreldrar Nýtt grunnskólaár er að hefjast og vonum við að allir hafi átt gott sumarfrí og mæti nú hressir og kátir til leiks. Skólasetning Auðarskóla er miðvikudaginn 23. ágúst og bjóðum við líkt og áður alla nemendur og foreldra velkomna í skólann þennan fyrsta skóladag ársins. Nemendur hitta umsjónarkennara sína á eftirfarandi tímum: Kl. 10:00       Yngsta stig   í neðri …