Þemadagarnir 26. – 28. febrúar

admin Fréttir

Dagana 26. – 28. febrúar verða þemadagar í grunnskóladeild Auðarskóla. Þema ársins er „íþróttir“.  Að vanda er fjölbreytileikinn i fyrirrúmi á þemadögum.  Ýmsar nýjar íþróttagreinar verða hannaðar, Einar Daði Lárusson og Ragnhildur Skúladóttir koma i heimsókn frá ÍSÍ  og haldnir verða Auðarskólaleikar.  Þessa daga riðlast nokkuð tímaskipulag og hefðbundin stundatafla er lögð til hliðar um stund.  Því hafa verið sett …

Þemadagar

admin Fréttir

Dagana 11. – 13. febrúar verða árlegir þemadagar í grunnskóladeild Auðarskóla.  Þemað  er „Sagan í Dölum“.   Nemendum og starfsmönnum hefur verið skipt niður í hópa, sem hafa verið að störfum síðustu tvær vikurnar til að undirbúa þemavinnuna.  Að þessu sinni verður þemað afrakstursmiðað.   Í lok þemadagana verður opið hús og þar verður foreldrum og gestum  boðið að heimsækja skólann frá kl. 11.00 á föstudag …

Myndlistasýning

admin Fréttir

Nú stendur yfir myndlistasýning nemenda úr 8. bekk í Leifsbúð.  Nemendur völdu sjálfir verk eftir valinn listamann/konu. Því næst prentuðu þeir út mynd af verkinu, staðsettu myndina á striga og stækkuðu hana. Þeir áttu að ímynda sér hvernig myndin gæti hafa litið út, mála viðbótina og reyna að ná litum og áferð frummyndarinnar eftir bestu getu.   Myndirnar verða til sýnis …

Morgunverður í Auðarskóla

admin

Tvær tegundir af súrmjólk, fimm tegundir af morgunkorni, rúsínur og fjórar tegundir af ávöxtum/grænmeti.

Auðarskóli á Fésbók

admin Fréttir

Í ágúst var tekin sú ákvörðun í skólanum að prufa að nota Fésbók  meira til að veita fréttum úr skólastarfinu.   Farin var sú leið að stofna lokaða fésbókarhópa þar sem aðeins væru foreldrar, starfsmenn og eftir atvikum nemendur.  Efsta stig og leikskólinn riðu á vaðið og byrjuðu að prufa sig áfram.  Nú hafa mið- og yngsta stig bæst við.   Þátttaka …

Námsefniskynningar

admin

Framundan eru námsefniskynningar með foreldrum í grunnskóladeildinni.  Á námsefniskynningum er farið yfir skipulag kennslu og það námsefni sem kenna á.  Einnig eru fundirnir hentugir fyrir foreldra að skipuleggja foreldrasamstarf vetrarins; kjósa tengla og fl. Kynningarnar verða sem hér segir: 03. september elsta stig kl. 15.00 – 16.00 09. september miðstig kl. 15.00 – 16.00 10. september yngsta stig kl. 14.00 …

Breytingar á starfsemi leikskólans

admin

Framundan eru allnokkrar breytingar í leikskólanum.  Frá og með 1. október eykst þjónusta skólans þegar hann tekur inn börn frá 12 mánaða aldri.  Þetta er viðamikil  breyting sem kostar talsverðan undirbúning.   Ljóst er að breytingin mun hafa áhrif á allt innra starf leikskólans.   Ítarlegri upplýsingar er að finna í hjálögðu foreldrabréfi. Slóð hér. Skólastjóri

Útivistardagur

admin

Í dag var útivistardagur í grunnskóladeildinni.  Þá færist kennslan meira út.  Hér á myndinni má sjá tíma úr heimilisfræði.

Skólasetning 2015

admin

Föstudaginn 21. ágúst næstkomandi mæta nemendur með foreldrum sínum sem hér segir: Kl. 09.50    Yngsta stig (nemendur fæddir 2009, 2008, 2007, og 2006) Kl. 10.10    Miðstig (nemendur fæddir 2005, 2004 og 2003) Kl. 10.30    Elsta stig (nemendur fæddir 2002, 2001 og 2000) Tekið er á móti nemendum og foreldrum á hverju stigi fyrir sig.  Eftir samveru stigsins  ganga umsjónarhópar til …

Kaffihúsakvöld

admin Fréttir

Fimmtudaginn 27. nóvember verður hið árlega kaffihúsakvöld í Dalabúð. Húsið opnar kl. 19:00 en skemmtunin byrjar kl. 19:30. Boðið verður upp á smákökur og heitt kakó. Nemendur úr 6.-10. bekk sýna bráðskemmtileg skemmtiatriði. Einnig verður happadrætti með glæsilegum vinningum. Inn á kaffihúsakvöldið kostar 700 kr. og innifalinn er einn happadrættismiði. Frítt er fyrir nemendur skólans og börn undir skólaaldri.  Hægt …