Kynning á drögum menntastefnu Dalabyggðar fyrir íbúa Dalabyggðar fór fram miðvikudaginn 17. janúar. Menntastefnu Dalabyggðar er ætlað að veita leiðsögn og innblástur öllum þeim sem koma að skólastarfi, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu. Opnað hefur verið fyrir tillögur á úrbótum á menntastefnunni. Í skjali sem fylgir frétt þessari er hægt að skrá tillögur og athugasemdir. Um er að ræða …
Félagsmiðstöðin-Samstarfshittingur 18.janúar
Komið er að fyrsta samstarfshittingi félagsmiðstöðva: Gildrunni er boðið á Hólmavík á fimmtudaginn 18. janúar.Lagt af stað frá skólanum kl. 16:45Komið til baka um kl. 21:10Muna að taka með nesti og góða skapið 🙂
Sundkennsla á vorönn
Sundkennsla hefst nk. þriðjudag 16. janúar. Allir hópar fá einn tíma á viku frá og með næsta þriðjudag og út vorönnina.
Fjarfundur-Ný menntastefnu Dalabyggðar 2023-2028
Miðvikudaginn 17. janúar nk. kl. 17 verður Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson ráðgjafi hjá Ásgarði skólaþjónustu með fjarfund á Teams fyrir íbúa Dalabyggðar til að kynna drög að nýrri menntastefnu Dalabyggðar fyrir árin 2023-2028. Menntastefnu Dalabyggðar er ætlað að veita leiðsögn og innblástur öllum þeim sem koma að skólastarfi, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu. Það er sveitarfélaginu mjög mikilvægt að fá …
Jólamyndakeppni grunnskólans
Jólamyndakeppni grunnskólans er árviss viðburður í starfi Auðarskóla. Veitt eru verðlaun fyrir bestu jólamyndina á hverju stigi. Í ár voru vinningshafar jólamynda: Stefanía Rut 4. bekk Svana Sigríður 5. bekk Þorgerður 10. bekk Til hamingju Stefanía, Svana og Þorgerður.
Jólagetraun á elsta stigi
Nemendur elsta stigs voru með daglega jólagetraun seinustu sjö kennsludaga fyrir jólafrí. Spurningarnar voru stærðfræði og íslensku tengdar. Telma Karen vann jólagetraunina og fékk glæsilegan vinning í verðlaun. Til hamingju Telma Karen.
Frá 8. des: Leikskólinn lokar á föstudögum kl. 14
Breyting hefur orðið á opnunartíma leikskólans á föstudögum. Frá og með föstudeginum 8. desember mun leikskólinn loka kl. 14:00.
Jólatónleikar tónlistarskólans
Jólatónleikar tónlistarskólans verða haldnir miðvikudaginn 13. desember kl. 15:30 í Dalabúð.