Stjórn nemendafélags Auðarskóla

admin

Nemendur hafa nú, á fyrstu dögum skólaársins,  kosið eftirfarandi til  stjórnar í  nemendafélagi sínu: Angantý E. Guðmundsson 10. bekk Braga Gíslason 10. bekk Elínu H. Jóhannesdóttur 9. bekk Hlöðver I. Oddsson 8. bekk Stefán R. Kristjánsson 9. bekk Þórönnu H.Gilbertsdóttur 8. bekk Til vara voru eftirfarandi kosnir:  Benedikt M.Finnsson 8. bekk Guðmundur Guðbjörnsson 9. bekk Guðbjartur R. Magnússon 10. bekk …

Fjöruferð 7. bekkjar

admin

Síðast liðinn mánudag fóru nemendur 7. bekkjar í fjöruferð. Nemendur þurftu að undirbúa sig fyrir ferðina og var einn tíminn í upplýsingamennt notaður til þess. Nemendur reiknuðu sjálfir út klukkan hvað og hvaða dag mesta fjaran væri og var svo ákveðið í sameiningu að mánudagurinn 12. september eftir hádegi væri bestur til ferðarinnar. Nemendur áttu að koma klæddir samkvæmt veðri …

Aðafundur foreldrafélagsins

admin

Aðalfundur foreldrafélags Auðarskóla verður haldinn í grunnskólanum miðvikudaginn 21. September, kl. 20:00. Dagskrá · Venjuleg aðalfundarstörf · Lagabreytingar 9.gr. (eins og hún er núna) Þrjú deildaráð starfa í félaginu; leikskólaráð, grunskólaráð Búðardal og grunnskólaráð Tjarnarlundi. Deildaráð funda svo oft sem þurfa þykir. Deildaráð skulu koma saman til formlegs fundar eigi sjaldnar en tvisvar á skólaárinu með stjórn félagsins. Stjórnin undirbýr …

Uppskrift af leir fyrir áhugasama

admin

Leir 2 bollar hveiti 1 bolli salt 1 tsk. Cream of tartar (ekki nauðsynlegt) 2 msk. olía u.þ.b. 2 bollar heitt vatn matarlitur Aðferð: Öllu nema vatni blandað saman í skál, heitu vatni (gott að hita það í hraðsuðukatli) síðan hellt út í. Því næst er blandan hrærð og hnoðuð vel saman. Leirinn er best að geyma í lokuðu íláti …

Ungir og efnilegir listamenn í Auðarskóla

admin

Tveir nemendur í Auðarskóla hafa nú birt á youtube hljóðritanir sínar eftir upptökur.  Annarsvegar er það Árný Björk Brynjólfsdóttir sem syngur “ Who Says“  við undirleik Daða Nikulássonar: Slóð hér . Hinsvegar er það Hlöðver Smári Oddsson sem syngur frumsamið lag sitt “ No way – lonely“ og spilar einnig á gítar. Slóð hér.

Relgur í skólaakstri

admin

Nú í vor samþykkti sveitarstjórn Dalabyggðar nýjar reglur sem gilda í skólaakstri.  Reglurnar eru núna komnar á heimasíðu skólans og þær má finna á slóðinni: http://www.audarskoli.is/skoacutelaakstur1.html

Nýjar starfsreglur og endurskoðað ástundunarkerfi

admin

Nú í upphafi skólaársins taka gildi nýjar starfsreglur um meðferð agabrota.  Reglurnar eru smíðaðar í kjölfar nýrra skólareglna. Þá hefur ástundunarkerfi skólans einnig verið endurskoðað.  Allir nemendur í 6. – 10. bekk fá nú ástundunareinkunn.   Allar breytingar á ástundun svo og öll agabrot eru nú send í tölvupósti heim til foreldra á hálfsmánaðar fresti. Búið er að kynna nemendum …

Nýja sófasettið

admin

Nú hafa verið keyptir nýir sófar í efra rými grunnskólans í Búðardal.  Sófarnir leysa af hólmi gamalt sófasett, sem elstu menn muna vart hvernær var keypt.  Var það mál manna að löngu væri orðið tímabært að bæta setaðstöðu nemenda og endurnýja sófana. Í framhaldinu verður unnið að því að setja upp hljóðkerfi í rýminu þannig að auðvelt verði að spila …

Heimasíðan komin í lag

admin

Nú í nótt komst heimasíðan aftur í loftið.  Tilkynningar og fréttir fara að birtast á síðunni á nýjan leik.

Áhrif verkfalls leikskólakennara á leikskóla Auðarskóla

admin

Félag leikskólakennara hefur boðað til verkfalls mánudaginn 22. ágúst næstkomandi, hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Ef af boðuðu verkfalli verður, lokar Álfadeild leikskóla Auðarskóla frá og með þeim tíma. Bangsadeild og önnur starfssemi leikskólans verður með óbreyttum hætti. Vel verður fylgst með framvindu verkfallsins og hugsanlegum ágreiningsmálum með veitta þjónustu leikskólans í huga. Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri